Á jarðarberjaakri … eða eitthvað
Þegar við ímyndum okkar hvernig það bragðast að standa á hafraakri og horfa yfir jarðarberjaakur á ferskum sumarmorgni í Suður-Svíþjóð, þá ímyndum við okkur alvöru jarðarber í bland við upprunalega hafragúrtið, allavega ef þú ert að borða Hafragúrt Jarðaberja á meðan þú stendur þarna.
Jarðarberjasprengja
Ef þú hefur verið að segja að þig langi til að borða meira úr plöntum en gætir aldrei hætt að borða jarðarberjajógúrt, þá bjuggum við þetta þykka og mjúka, ávaxtamikla gúrt fyrir þig, en jarðarberin virka alveg jafn vel fyrir fólk sem borðar nú þegar plöntumiðað. Geymist í kæli við 8°C. Ekkert soja og náttúrulega engar mjólkurvörur.
More about this product
Ég hef punkta, og nokkrar spurningar. Við hvern get ég talað?
Við stofnuðum OatlyFans bara til að geta svarað þessu og öðrum spurningum sem þú gætir viljað svör við.
Hvernig reiknar maður út kolefnisspor fyrir þessa vöru?
Við söfnum saman gögnum um losun gróðurhúsalofttegunda frá upphafi ræktunar til smásölu sem CarbonCloud, sem hefur 20 ára reynslu af rannsóknum á matvælaiðnaðinum, setur inn í sitt reiknilíkan til að fá út áætlað koltvísýringsgildi (CO2e). Þegar sú greining hefur farið fram eru forsendur, gögn og niðurstöður sendar á hlutlausan greiningaraðila sem staðfestir útreikninginn. Í stuttu máli, þá eru allar tölur grannskoðaðar af fagaðilum sem vita hvað þeir eru að gera. Lestu um það allt hér: oatly.com/footprint
Hvar get ég keypt þessa mögnuðu hafravöru?
Biddu uppáhaldsbúðina þína um að bjóða upp á vöruna eða notaðu Oatfinder til að finna kaffihús sem býður upp á Oatly Barista Edition.
Ég hata Oatly en ég kem því ekki í orð.
Þú hljómar eins og manneskja sem sérfræðingur okkar í stafrænum miðlum var með í huga sem markhóp fyrir þessa vefsíðu: https://fckoatly.com/