FYRIR MATREIÐSLU EÐA BAKSTUR
Rjómakenndur og lífrænn matreiðslufélagi úr plöntum sem bæði vegan-systkinið þitt og kjötætu-makinn geta notið í kompaníi við afa þinn sem er að reyna að lækka kólesterólið og vinkonu þína með mjólkuróþolið. Því það eru gjörsamlega engar mjólkurvörur í honum og það er minni mettuð fita en í matreiðslurjóma úr dýrum. Það geta því nær allir borðað þegar honum er hellt í kássuna þína! Það hljómar hreinlega eins og allir geti verið með!
Nýr lífrænn staðall
Virkar eins og venjulegur rjómi úr kú en það er ekkert venjulegt eða kúalegt við hann. Við bjuggum hann til fyrir fólk sem vill borða fleiri plöntur og minna af mettaðri fitu* og vill að hafrarnir sem það borðar séu lífrænt ræktaðir. Hægt er að sjóða hann, nota kaldan eða á hvaða hitastigi sem þú vilt. Engar mjólkurvörur, ekkert soja og rosaauðveldur í notkun.
*Með því að skipta mettaðri fitu í mataræðinu þínu út fyrir ómettaða viðheldur það ráðlögðu kólesterólmagni í blóðinu, ásamt fjölbreyttu mataræði og heilbrigðum lífsstíl.
Eco-code: SE-EKO-01
More about this product
Hvar get ég keypt þessa mögnuðu hafravöru?
Biddu uppáhaldsbúðina þína um að bjóða upp á vöruna eða notaðu Oatfinder til að finna kaffihús sem býður upp á Oatly Barista Edition.
Hvernig reiknar maður út kolefnisspor fyrir þessa vöru?
Við söfnum saman gögnum um losun gróðurhúsalofttegunda frá upphafi ræktunar til smásölu sem CarbonCloud, sem hefur 20 ára reynslu af rannsóknum á matvælaiðnaðinum, setur inn í sitt reiknilíkan til að fá út áætlað koltvísýringsgildi (CO2e). Þegar sú greining hefur farið fram eru forsendur, gögn og niðurstöður sendar á hlutlausan greiningaraðila sem staðfestir útreikninginn. Í stuttu máli, þá eru allar tölur grannskoðaðar af fagaðilum sem vita hvað þeir eru að gera. Lestu um það allt hér: oatly.com/footprint
Ég hef punkta, og nokkrar spurningar. Við hvern get ég talað?
Við stofnuðum OatlyFans bara til að geta svarað þessu og öðrum spurningum sem þú gætir viljað svör við.
Ég hata Oatly en ég kem því ekki í orð.
Þú hljómar eins og manneskja sem sérfræðingur okkar í stafrænum miðlum var með í huga sem markhóp fyrir þessa vefsíðu: https://fckoatly.com/
Ingredients
Vatten/vann, rapsolja*, HAVRE* 9%, emulgeringsmedel (lecitiner)**, stabiliseringsmedel (xantangummi, gellangummi), surhetsreglerande medel (kalciumkarbonat), havssalt. *KRAV-certifierad råvara. **EU-ekologisk råvara.Nutritional Values
Orka | 611kJ/148kcal |
Fita | 13g |
þar af mettuð | 1.1g |
Kolvetni | 6.2g |
þar af sykurtegundir | 3.0g |
Trefjar | 0.9g |
Prótein | 1.0g |
Salt | 0.11g |