LÍFRÆNN PÚRITISMI
Hvers vegna eru lífrænir drykkir úr plöntum ekki bættir? Þó að ESB-löggjöfin leyfi mjólkurbændum að gefa lífrænum mjólkurframleiðendum sínum, það er að segja kúm, vítamín- og steinefnabættan fóðurbæti, megum við ekki nota sömu bættu hafrana, gefa manneskjum þá beint og kalla þá lífræna. Sem neyðir þig til að velja á milli vítamínbættrar haframjólkur og lífrænnar haframjólkur og okkur til að viðurkenna að allt þetta blaður um púritisma var bara markaðssetningarbrasl. En þú getur þó fengið vítamínin þín og steinefnin með fjölbreyttu plöntumataræði, svo þetta reddast.
Til lífrænnar notkunar
Við viljum ekki drepa þig úr leiðindum með hvað okkur finnst um að geta ekki bætt lífrænu haframjólkina okkar, svo við skulum fagna því að þú getur drukkið þessa ótrúlegu haframjólk eins og hún kemur fyrir og notað hana í matseldina og baksturinn. Hún er framleidd með 100% lífrænum höfrum, án soja og mjólkur, og þú getur geymt óopnaðar umbúðir við stofuhita.
Eco-code: SE-EKO-01
More about this product
Hvar get ég keypt þessa mögnuðu hafravöru?
Biddu uppáhaldsbúðina þína um að bjóða upp á vöruna eða notaðu Oatfinder til að finna kaffihús sem býður upp á Oatly Barista Edition.
Hvernig nota ég þennan hafradrykk?
Í eldamennskuna og baksturinn
1. Veldu hvaða uppskrift sem er til að elda eða baka.
2. Þar sem uppskriftin tilgreinir mjólk, notaðu hafradrykk í staðinn.
Í kaffi, te eða heitt súkkulaði
1. Gerðu allt tilbúið.
2. Notaðu þennan hafradrykk í stað kúamjólkur
Til drykkjar
1. Helltu þessum hafradrykk í glas eða bolla.
2. Drekktu
Þarfnastu frekari innblásturs?
Sjáðu “Will it Swap?”Hvernig reiknar maður út kolefnisspor fyrir þessa vöru?
Við söfnum saman gögnum um losun gróðurhúsalofttegunda frá upphafi ræktunar til smásölu sem CarbonCloud, sem hefur 20 ára reynslu af rannsóknum á matvælaiðnaðinum, setur inn í sitt reiknilíkan til að fá út áætlað koltvísýringsgildi (CO2e). Þegar sú greining hefur farið fram eru forsendur, gögn og niðurstöður sendar á hlutlausan greiningaraðila sem staðfestir útreikninginn. Í stuttu máli, þá eru allar tölur grannskoðaðar af fagaðilum sem vita hvað þeir eru að gera. Lestu um það allt hér: oatly.com/footprint
Ég hef punkta, og nokkrar spurningar. Við hvern get ég talað?
Við stofnuðum OatlyFans bara til að geta svarað þessu og öðrum spurningum sem þú gætir viljað svör við.
Ég hata Oatly en ég kem því ekki í orð.
Þú hljómar eins og manneskja sem sérfræðingur okkar í stafrænum miðlum var með í huga sem markhóp fyrir þessa vefsíðu: https://fckoatly.com/
Ingredients
Vann/vand, HAVRE* 10%, havsalt. *Økologisk ingrediens.Nutritional Values
Orka | 166kJ/39kcal |
Fita | 0.5g |
þar af mettuð | 0.1g |
Kolvetni | 7.2g |
þar af sykurtegundir | 3.4g |
Trefjar | 0.8g |
Prótein | 1.1g |
Salt | 0.10g |